Eyjafjarðarsveit leitar hugmynda um uppbyggingu á reit gamla Þinghússins
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að efna til hugmyndaþings um framtíð reitsins þar sem gamla Þinghúsið stendur í Hrafnagilshverfi. Markmið þingsins er að kalla fram vandaðar og raunhæfar hugmyndir um uppbyggingu og nýtingu svæðisins til framtíðar. Áður var starfandi leikskól
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að efna til hugmyndaþings um framtíð reitsins þar sem gamla Þinghúsið stendur í Hrafnagilshverfi. Markmið þingsins er að kalla fram vandaðar og raunhæfar hugmyndir um uppbyggingu og nýtingu svæðisins til framtíðar. Áður var starfandi leikskóli í húsinu.
Ástandsskoðun Eflu frá ágúst síðastliðnum sýnir verulega viðhalds- og endurbótaþörf á húsinu. Sveitarstjórn telur að umfangsmiklar og kostnaðarfrekar framkvæmdir þyrfti til að koma húsinu í viðunandi horf og telur ekki forsvaranlegt að ráðast í slíkar endurbætur miðað við núverandi forsendur.
Því telur sveitarstjórn rétt að horfa til framtíðar varðandi nýtingu svæðisins. Undirbúningi hugmyndaþingsins, sem stefnt er að halda á komandi vetri, hefur verið vísað til skipulagsnefndar.
→ Lesa upprunalegu fréttina á Víkublaðið
Heimild: Víkublaðið