Gámaeiningar munu hýsa skrifstofur við SAk

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur óskað eftir leyfi til að setja upp þrjár skrifstofugámaeiningar á svæði norðan við gömlu þvottahúsbyggingu sjúkrahússins. Umsóknin gerir ráð fyrir að einingarnar standi í allt að fimm ár, eða þar til viðbygging sjúkrahúss

Gámaeiningar munu hýsa skrifstofur við SAk
Mynd: Braggi.is

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur óskað eftir leyfi til að setja upp þrjár skrifstofugámaeiningar á svæði norðan við gömlu þvottahúsbyggingu sjúkrahússins. Umsóknin gerir ráð fyrir að einingarnar standi í allt að fimm ár, eða þar til viðbygging sjúkrahússins er fullgerð.

Skipulagsráð hefur tekið umsóknina fyrir og gerði engar athugasemdir við erindið. Ráðið taldi að um svo óverulegt frávik væri að ræða að ekki væri þörf á að breyta deiliskipulagi svæðisins.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn