Fyrstu veggeiningar nýs leikskóla á Hellu reistar
Fyrstu veggeiningar nýs leikskóla á Hellu eru nú farnar að rísa og gefa framkvæmdunum sífellt skýrari mynd. Leikskólinn er eitt stærsta uppbyggingarverkefni Rangárþings ytra.
Framkvæmdir við nýjan leikskóla á Hellu taka nú á sig sífellt skýrari mynd með uppsetningu fyrstu veggeininganna.
Undirstöður leikskólans eru nú þegar vel sjáanlegar og með uppsetningu veggjanna hefst nýr og áberandi áfangi í framkvæmdunum.
Nýr leikskóli er eitt stærsta og mikilvægasta uppbyggingarverkefni Rangárþings ytra.
Heimild: DFS