Framkvæmdir við stúdentagarða á Akureyri hafnar, 6.700 fermetrar rísa

Fyrstu skóflustungur að nýjum stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta (FÉSTA) við Háskólann á Akureyri voru teknar síðdegis í dag. Garðarnir munu rísa við Norðurslóð 3, 5 og 7, meðfram Dalsbraut. Þar verða 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi í þremur húsum, alls um 6.700 fermetrar.

Fyrstu skóflustungur nýrra stúdentagarða
Mynd: needpix.com (CC0)

Fyrstu skóflustungur að nýjum stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta (FÉSTA) við Háskólann á Akureyri voru teknar síðdegis í dag. Garðarnir munu rísa við Norðurslóð 3, 5 og 7, meðfram Dalsbraut. Þar verða 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi í þremur húsum, alls um 6.700 fermetrar.

Fyrsti áfangi, Þingvellir, sem inniheldur 64 einstaklingsherbergi, er áætlaður tilbúinn í júlí 2028. Verkinu í heild er stefnt að ljúka árið 2029. Kostnaðaráætlun við byggingu garðanna var rúmir 4,7 milljarðar króna, en lægsta tilboð í verkið átti K16 ehf., upp á tæpa 4,5 milljarða króna.

Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar 100% í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Salan á tveimur eignum FÉSTA, annarri blokkinni í Kjalarsíðu 1 og húsinu Útsteini í Skarðshlíð 46, mun verða hluti af fjármögnun nýbygginganna.

Arkitektastofan Nordic Office of Architecture sigraði í samkeppni um hönnun stúdentagarðanna. Helstu undirverktakar K16 við verkið verða Rafmenn, Blikkrás, Norðurlagnir og GV gröfur.

→ Lesa upprunalegu fréttina á Akureyri.net

Heimild: Akureyri.net

Deila Facebook X LinkedIn