Fyrsta skóflustungan til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum

Ríkisstjórnin hefur hafið umfangsmikið átak til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum, en fyrsta skóflustungan var tekin að Sogni í Ölfusi. Þar hófust framkvæmdir við að loka framræsluskurðum sem munu endurheimta um 25 hektara votlendis og loka fjórum

Fyrsta skóflustungan til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum
Mynd: Braggi.is

Ríkisstjórnin hefur hafið umfangsmikið átak til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum, en fyrsta skóflustungan var tekin að Sogni í Ölfusi. Þar hófust framkvæmdir við að loka framræsluskurðum sem munu endurheimta um 25 hektara votlendis og loka fjórum kílómetrum af skurðum.

Í heildina verða 225 hektarar votlendis endurheimtir á fimm ríkisjörðum í haust, sem jafngildir lokun um 23 kílómetra af framræsluskurðum. Áætlað er að á þessu ári og því næsta verði endurheimt stærra svæði raskaðs votlendis en á síðustu 30 árum. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók fyrstu skóflustunguna og sagði framkvæmdirnar marka upphaf fimm ára átaks stjórnvalda um vernd og endurheimt vistkerfa.

Átakið er samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Lands og skóga og Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Markmiðið er að nýta ríkisjarðir til að framfylgja stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og líffræðilegri fjölbreytni.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn