Fyrsta skóflustunga tekin að nýju fangelsi á Stóra-Hrauni
Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka fyrr í dag, en um er að ræða fyrsta öryggisfangelsið á Íslandi. Framkvæmdirnar munu skapa rými fyrir allt að 128 fanga þegar þeim verður lokið. Þorbjörg Sigríður Gunn
Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka fyrr í dag, en um er að ræða fyrsta öryggisfangelsið á Íslandi. Framkvæmdirnar munu skapa rými fyrir allt að 128 fanga þegar þeim verður lokið. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra lýsti framkvæmdinni sem stærstu í fangelsismálum í sögu Íslands. Með nýju fangelsi er stefnt að því að auka öryggi, gera kleift að aðgreina fanga eftir þörfum og bæta aðstöðu til náms, vinnu, meðferðar og endurhæfingar.
Uppbyggingunni verður skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum verður byggt fyrir 56 fanga, auk skólabyggingar, vinnustofu, vöruhúss og aðalbyggingar. Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga er 17,8 milljarðar króna og er hann fullfjármagnaður. Borgarverk hefur samið við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir (FSRE) um jarðvinnu vegna verkefnisins, en lægsta tilboð í það verkefni nam tæplega 993 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi fangelsisins verði tilbúinn árið 2031. Þá mun nýja fangelsið geta tekið við 56 föngum og öll aðstaða til vinnu og endurhæfingar verður þegar til staðar.
Við skóflustunguna voru viðstödd Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, Bragi Bjarnason bæjarstjóri í Árborg og Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef DFS
Heimild: DFS