Fyrsta húsið í Hamborg risið

Fyrsta húsið í nýju þéttbýli, Hamborg í Fljótsdal, er risið. Húsið er sérstætt fyrir að vera nánast alfarið byggt úr íslenskum viði.

Fyrsta húsið í Hamborg risið
Mynd: pixabay.com / other / Pexels

Fyrsta húsið í nýju þéttbýli, Hamborg í Fljótsdal, er risið og var síðasta sperran sett í morgun. Um er að ræða einbýlishús sem Fljótsdalshreppur byggir og er það sérstætt fyrir að vera nánast alfarið byggt úr íslenskum viði, en Skógarafurðir í Fljótsdal hlutu nýlega vottun til að framleiða burðarvið.

Áætlað er að húsið verði 80% tilbúið fyrir lok þessa árs. Ár er liðið frá fyrstu formlegu skóflustungunni á svæðinu, sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tók að húsi sem upphaflega átti að vera í einkaeigu en hefur tafist. Alls hefur verið úthlutað sex lóðum í Hamborg og fyrirspurnir hafa borist um fleiri.

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hefur ákveðið að leggja fjarvarmaveitu fyrir öll húsin í Hamborg, sem mun tengjast miðlægri varmadælu. Efni í hitaveitulagnir er væntanlegt í næstu viku. Búið er að finna tæplega 10 gráðu heitt vatn á svæðinu sem nýtist fyrir veituna, og verður það rannsakað nánar á næstu dögum áður en búnaður er pantaður.

Fjarvarmaveitan verður hýst í húsi sem jafnframt mun nýtast sem áhaldahús fyrir Fljótsdalshrepp, en hönnun þess er í vinnslu og stefnt er að reisa það í haust. Í sumar voru einnig lagðar lagnir fyrir neysluvatn, sem tekið er úr áreyrum Bessastaðaár neðan Hamborgar og leitt upp í 50.000 lítra tank í fjalli, þaðan sem þrýstipípa liggur niður í byggðina.

Jarðvegsvinna hófst áður en forsetinn tók skóflustunguna, en klæðning gat ekki verið lögð á götur síðasta haust vegna frosts.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt

Heimild: Austurfrétt

Deila Facebook X LinkedIn