Fylkisselið stækkar um tæpa 600 fermetra
Reykjavíkurborg hefur undirritað samning við Íþaka fasteignir um áframhaldandi leigu og stækkun Fylkissels um 567 fermetra. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og fulltrúar Íþaka fasteigna undirrituðu samninginn að viðstöddum formanni Fylkis.
Húsnæðið á Norðlingabraut 12 er nú þegar notað fyrir fimleika- og karateæfingar íþróttafélagsins Fylkis. Stækkunin er sögð styðja við vinsælar íþróttagreinar í hverfinu og nálægum svæðum, auk þess að stuðla að fjölgun greina og iðkenda í íþróttastarfi barna og unglinga.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að stækkun fimleikahúss Fylkis hafi verið forgangsraðað í fyrsta sæti í uppbyggingu íþróttamannvirkja, í samræmi við stefnu í íþróttamálum Reykjavíkur til ársins 2030. Þá er einnig bent á að verkefnið samræmist samstarfsyfirlýsingu meirihluta borgarstjórnar um lífsgæði í Reykjavík, sem leggur áherslu á að bæta aðgengi að íþróttum fyrir börn og ungmenni.
Sjá nánar: visir.is