FSRE óskar eftir leiguhúsnæði fyrir heimavist Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir heimavist Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, með skilafrest til 29. maí 2026.

FSRE óskar eftir leiguhúsnæði fyrir heimavist Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi
Mynd: Ketut Subiyanto / Pexels

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE), f.h. Ríkissjóðs Íslands, óskar eftir að taka tímabundið á leigu húsnæði fyrir heimavist Fjölbrautarskóla Suðurlands (FSu) á Selfossi eða í næsta nágrenni. Útboðsnúmer er 26-0097.

Óskað er eftir húsnæði til leigu fyrir starfsemi heimavistar, ætlaðri nemendum á framhaldsskólastigi. Markmiðið er að finna heppilegt, öruggt og hentugt húsnæði sem nýtist sem heimavist fyrir nemendur skólans. Leigutímabil er fimm ár, frá 15. ágúst til 15. maí. Leigutími, lengd samnings og fyrirkomulag leigu verða nánar útfærð í samráði við leigusala.

Óskað er eftir húsnæði sem er 500 – 670 fermetrar að stærð og inniheldur 8-16 herbergi. Krafa er að leigutaki hafi full og óskipt umráð yfir húsnæðinu, og að önnur starfsemi í húsinu sé í samræmi við rekstur heimavistar fyrir ólögráða nemendur. Útboðsgögn verða afhent 12. maí 2026 kl. 09:00 og skilafrestur er 29. maí 2026 kl. 12:00. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Auglýsing þessi felur ekki í sér loforð um viðskipti og er réttur áskilinn til að hafna tilboðum.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →