FSRE óskar eftir leiguhúsnæði fyrir heimahjúkrun og sálfélagslega þjónustu HSS
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Heimahjúkrunar og sálfélagslegrar þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Reykjanesbæ, með skilafrest til 29. maí 2026 kl. 12:00.
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, f.h. ríkissjóðs, óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Heimahjúkrunar og sálfélagslegrar þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) í Reykjanesbæ. Útboðsnúmer er 25-0232. Skilafrestur er 29. maí 2026 kl. 12:00 og opnun tilboða er sama dag kl. 13:00.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, með möguleika á framlengingu til 5 ára í senn að leigutíma loknum. Húsnæðið skal vera fullbúið til notkunar, af góðum gæðum án lauss búnaðar. Það er kostur að starfsemin sé nálægt heilsutengdri þjónustu eða HSS. Æskilegt er að aðkoma sé greið, stutt í göngu- og hjólastíga og almenningssamgöngur. Gott aðgengi skal vera til staðar, þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði. Fjöldi stæða miðast við fjölda stæða í húsrýmisáætlun. Húsrýmisþörf er áætluð 1.000-1.100 fm. brúttó og æskilegt að húsnæðið sé á einni hæð. Afhendingartími húsnæðis er að hámarki 12 mánuðir frá undirritun leigusamnings eða fyrr.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is