FSRE leitar að leiguhúsnæði fyrir Barna- og fjölskyldustofu
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE) hefur auglýst eftir leiguhúsnæði fyrir Barna- og fjölskyldustofu í þremur landshlutum. Skilafrestur er 27. maí 2026.
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE) hefur auglýst eftir leiguhúsnæði fyrir Barna- og fjölskyldustofu í þremur landshlutum. Um er að ræða leiguhúsnæði íbúðargerðar, bæði í einbýli og/eða fjölbýli, þar sem hver leigueining hefur sérinngang.
Alls er óskað eftir tíu íbúðum, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu, tvær á Vesturlandi og tvær á Suðurnesjum. Leitað er eftir 3-5 herbergja íbúðarhúsnæði, einkum nýlegu eða viðhaldslitlu í góðu ástandi. Kostur er ef framboðnar íbúðir eru í nálægð hver við aðra eða í sama húsi.
Leigusali mun sjá um allt viðhald samkvæmt húsaleigulögum. Húsnæðið skal uppfylla allar lögbundnar kröfur um brunavarnir og vera skráð sem íbúðarhúsnæði með sér fastanúmeri. Afhendingartími er að hámarki sex mánuðir frá undirritun leigusamnings.
Við mat á tilboðum verður tekið tillit til leiguverðs, stærðar og skipulags húsnæðis, öryggis, afhendingartíma, staðsetningar, aðkomu og aðgengis að bílastæðum. Skilafrestur tilboða er til 27. maí 2026 kl. 13:00. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða fram húsnæði eru hvattir til að kynna sér útboðsgögnin nánar á vef Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is