FSRE býður út hönnun og byggingu Jarðræktarmiðstöðvar á Hvanneyri

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskar eftir tilboðum í hönnun og byggingu á Jarðræktarmiðstöð á Hvanneyri og er skilafrestur til 9. febrúar 2027.

FSRE býður út hönnun og byggingu Jarðræktarmiðstöðvar á Hvanneyri
Mynd: SHOX ART / Pexels

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), fyrir hönd Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ), óskar eftir tilboðum í hönnun og byggingu á Jarðræktarmiðstöð við Túngötu 27a á Hvanneyri. Útboðið er númer 6330273.

Verkefnið felst í fullnaðarhönnun, byggingu og fullnaðarfrágangi á nýrri jarðræktarstöð sem verður um það bil 980 fermetra bygging á einni hæð. Verktaki skal byggja húsið og ganga frá því með föstum innréttingum og fullfrágenginni lóð.

Fram kemur að markmið með byggingunni sé að efla aðstöðu jarðræktarmiðstöðvar LBHÍ á Hvanneyri og efla rannsóknir í jarðrækt í samræmi við stefnu stjórnvalda varðandi fæðuöryggi. Um er að ræða almennt útboð á Evrópska efnahagssvæðinu undir heitinu „Design and Construction of an Agricultural Research Center“.

Áætluð verklok eru 1. desember 2028. Skilafrestur tilboða er til 9. febrúar 2027 klukkan 12:00, en opnun tilboða fer fram klukkan 13:00 sama dag. Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn