Fresta vinnu við brúna yfir Jökulsá fram á vor
Viðhaldsvinnu við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram á vor vegna veðurskilyrða. Þetta þýðir að engar frekari umferðartafir verða vegna viðgerða á brúnni í haust.
Áframhaldandi viðhaldsvinnu við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram á vor.
Samkvæmt upphaflegri áætlun átti að vinna við brúna fram í miðjan mánuð. Á meðan framkvæmdir stæðu yfir átti að hleypa umferð aðeins yfir í hollum nokkrum sinnum á dag.
Vegna þessarar frestunar verða engar frekari umferðartafir við brúna vegna viðgerða í haust.
Vætutíð hefur gert verkafólki erfitt fyrir, sérstaklega við málningarvinnu, og því var ákveðið að fresta því sem eftir er af vinnunni.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær framkvæmdir hefjast að nýju.
Heimild: RÚV