Framkvæmdum við frjálsíþróttavöll að Varmá að ljúka

Mynd fengið af https://mos.is
Mynd fengið af https://mos.is

Framkvæmdir við nýjan frjálsíþróttavöll að Varmá í Mosfellsbæ eru á lokametrunum og er áætlað að völlurinn verði tilbúinn til notkunar í byrjun júní. Malbikun á hlaupabrautum og æfingasvæði er að ljúka, en ofan á malbikið verður lagt tartar. Sú vinna hefst samkvæmt áætlun 20. maí eftir að malbikið hefur jafnað sig.

Völlurinn er hannaður af VSÓ ráðgjöf í samstarfi við Mosfellsbæ, frjálsíþróttadeild Aftureldingar og Frjálsíþróttasamband Íslands. Hann mun bjóða upp á 200 metra hlaupabraut, 60-80 metra spretthlaupabraut og aðstöðu fyrir hástökk, langstökk, þrístökk, stangarstökk og kúluvarp. Hlaupabrautin er upphituð og er gert ráð fyrir að hún nýtist árið um kring. Allur búnaður og lýsing á vellinum verður nýr og fyrsta flokks.

Sjá nánar: mos.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →