Framkvæmdum að ljúka við Andapollinn
Framkvæmdum við efri laug Andapollsins við Sundlaug Akureyrar er að ljúka. Nýr kantur hefur verið steyptur og laugin stytt lítillega.
Framkvæmdum við efri laug Andapollsins við Sundlaug Akureyrar er nú að ljúka. Nýr kantur hefur verið steyptur við laugina þeim megin sem snýr að sundlaugarhúsinu og hefur laugin jafnframt verið stytt lítillega.
Guðríður Friðriksdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, staðfestir að framkvæmdir séu á lokastigi. Efri laugin hefur verið vatnslaus um nokkurt skeið vegna framkvæmda við nýja innilaug sundlaugarinnar, en vinnuvélar þurftu að fara um svæðið. Nú er unnið að því að ganga frá nánasta umhverfi eftir framkvæmdatímann.
Vatni hefur verið hleypt á andapollinn, sem bendir til þess að framkvæmdum fari senn að ljúka. Eftir stendur lokafrágangur á borð við að ganga frá girðingum. Uppi eru áform um frekari gróðursetningu á svæðinu, meðal annars í brekkunum norðan og sunnan við laugina, en svæðið er eitt moldarflag eftir framkvæmdirnar. Líklegt er að gróðursett verði tré. Engin áform eru um breytingar á neðri laug Andapollsins að svo stöddu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net