Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi að hefjast
Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit eru að hefjast eftir að verksamningur var undirritaður við Fagurverk ehf. Markmiðið með verkefninu er að útbúa fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði við sjávarsíðuna sem mun þjóna íbúum
Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit eru að hefjast eftir að verksamningur var undirritaður við Fagurverk ehf. Markmiðið með verkefninu er að útbúa fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði við sjávarsíðuna sem mun þjóna íbúum á öllum aldri.
Bergur Þorgilsson frá Fagurverki, Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Hlynur Sigurdórsson umsjónarmaður mannvirkja handsöluðu samninginn. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstu dögum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn