Framkvæmdir við Krossanesbraut og Undirhlíð
Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Undirhlíðar og Krossanesbrautar á Akureyri hefjast í næstu viku. Framkvæmdirnar fara fram samhliða endurnýjun regnvatnslagna.
Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Undirhlíðar og Krossanesbrautar á Akureyri hefjast í næstu viku. Framkvæmdirnar fara fram samhliða endurnýjun regnvatnslagna á vegum Norðurorku.
Verkefninu er skipt upp í nokkra áfanga sem munu hafa mismunandi áhrif á umferð gangandi og ökutækja.
Í fyrsta áfanga, sem hefst mánudaginn 21. september, verður Krossanesbraut lokuð í báðar áttir; til norðurs frá gatnamótunum og til suðurs rétt sunnan við gatnamótin við Þverholt. Hjáleið verður um Hörgárbraut á meðan á þessum áfanga stendur.
Í seinni áföngum verða gatnamótin ýmist alveg lokuð eða opin að hluta. Tímasetning þeirra fer eftir framvindu framkvæmda við bæði gatnamótin og regnvatnslögnina. Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær seinni áfangar hefjast.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyrarbær
Heimild: Akureyrarbær