Framkvæmdir við HR og Nauthólsveg kynntar
Framkvæmdir vegna Borgarlínu hefjast við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík (HR) í vor, en gert er ráð fyrir verklokum á næsta ári. Í vikunni var haldinn kynningarfundur fyrir hagaðila á svæðinu þar sem farið var yfir helstu verkþætti og áætlanir,
Framkvæmdir vegna Borgarlínu hefjast við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík (HR) í vor, en gert er ráð fyrir verklokum á næsta ári. Í vikunni var haldinn kynningarfundur fyrir hagaðila á svæðinu þar sem farið var yfir helstu verkþætti og áætlanir, ásamt aðgerðum til að tryggja flæði samgangna á framkvæmdatímanum.
Betri samgöngur og Reykjavíkurborg stóðu að fundinum sem fram fór í húsakynnum HR á miðvikudag. Boð á fundinn fengu allir íbúar við Nauthólsveg, forsvarsmenn fyrirtækja og nemendur og starfsfólk HR, sem er stærsti vinnustaðurinn á svæðinu. Fulltrúar verkefnastofu Borgarlínu og Reykjavíkurborgar kynntu fyrirkomulag og áætlanir framkvæmda við Nauthólsveg sem snúa að endurgerð götunnar vegna tilkomu sérakreina fyrir Borgarlínu og nýrra stöðva.
Á fundinum kom fram að ein bílaakrein í hvora átt verður opin allan framkvæmdatímann á Nauthólsvegi með hjáleiðum. Einnig verða stígatengingar við stígana við Öskjuhlíð tryggðar og stoppistöðvar verða opnar allan framkvæmdatímann, þótt þær verði færðar til. Akstur með þungaflutninga verður takmarkaður við utan háannatíma til að lágmarka truflun. Möguleg tímabundin aukning bílastæða verður skoðuð.
Reglulegir fundir framkvæmdaaðila eru áætlaðir og samráð og samtal verkeigenda og verktaka mun fara fram til að koma auga á samlegð og samnýtingu. Á fundinum voru sýndar tölvugerðar ásýndarmyndir af fyrirhuguðum breytingum á götusniðinu og útliti Borgarlínustöðva á svæðinu. Stöðvarnar verða með þrepalausu og óheftu aðgengi fyrir alla, rýmri og þægilegri en nú tíðkast, og fargjald greitt fyrirfram.
Við endurgerð Nauthólsvegar helst fjöldi akreina fyrir bílaumferð óbreyttur, verður 1+1, en við bætast sérakreinar Borgarlínu sem eru miðjusettar. Þá verða göngu- og hjólastígar gerðir meðfram akreinum í báðar áttir. Tengingar við hjóla- og göngustíga verða sömuleiðis opnar allan framkvæmdatímann.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan
Heimild: Borgarlínan