Framkvæmdir við Hlemmtorg og uppbygging Borgarlínu
Borgarráð samþykkti í gær að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við Hlemmtorg og uppbyggingu Borgarlínu um Hlemm, en um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á sv
Borgarráð samþykkti í gær að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við Hlemmtorg og uppbyggingu Borgarlínu um Hlemm, en um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í apríl 2026 og verði lokið fyrir árslok 2027. Heildarkostnaðaráætlun verkefnisins er 1.190 milljónir króna, þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 500 milljónir króna. Um sameiginlegt framkvæmdaútboð Reykjavíkurborgar, Betri samgangna og Veitna er að ræða.
Framkvæmdin felur meðal annars í sér endurgerð gatnamóta Snorrabrautar og Hverfisgötu, auk endurgerðar götukafla á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Jafnframt verður gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll. Borgarlína verður lögð um torgsvæði Hlemms og tvær stoppistöðvar Borgarlínu settar upp á svæðinu.
Í tengslum við framkvæmdirnar verður einnig ráðist í endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa. Áhersla er lögð á virka og vistvæna ferðamáta, en almenningssamgöngur verða eina akandi umferðin um Hlemmtorg. Með framkvæmdunum verður Hlemmtorg mótað sem sterkur borgarkjarni með auknu rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og bættri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur.
Umhverfið í kring verður gönguvænna og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytt mannlíf. Leið hjólandi fólks verður stórbætt um svæðið ásamt því að sköpuð verður hágæða aðstaða fyrir hjólreiðar, þar á meðal aðstaða til viðgerða og geymslu hjóla. Mikil áhersla er lögð á að gera svæðið gróðursælt með fjölbreyttum gróðri, en þar verða einnig ofanvatnsbeð, sem eru sérstök gróðurbeð sem taka á móti ofanvatni. Nokkrir áfangar á Hlemmi hafa þegar verið framkvæmdir og hafa þeir gefið svæðinu nýja ásýnd með fallegu heildaryfirbragði torgs, setsvæðum og gróðri.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan
Heimild: Borgarlínan