Framkvæmdir við göngu- og hjólastíga við Ásahverfi
Framkvæmdir við aðskilnað göngu- og hjólastíga í Ásahverfi í Garðabæ eru í fullum gangi. Vinnusvæðið nær nú frá göngu- og hjólabrúnni við Breiðás að Lyngási, vestan megin við Hafnarfjarðarveginn.
Framkvæmdir við aðskilnað göngu- og hjólastíga í Ásahverfi í Garðabæ eru í fullum gangi.
Nú er unnið á kafla milli göngubrúar og Lyngáss. Vinnusvæðið nær frá göngu- og hjólabrúnni við Breiðás að Lyngási, vestan megin við Hafnarfjarðarveginn.
Á meðan á framkvæmdum stendur er hjáleið um Stórás fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Aðgengi að göngu- og hjólabrúnni vestan megin Hafnarfjarðarvegar um Breiðás er áfram takmarkað. Aðeins er hægt að komast um tröppur og hjólaramp með tvöföldum rennum. Stóri rampurinn upp að brúnni er enn lokaður.
Strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg er opin, en áfram er unnið við frágang og hellulögn á eldra vinnusvæði milli göngubrúar og Álftanesvegar.
Áætlað er að lokun á þessu svæði muni vara fram í september.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær