Framkvæmdir við brúarsmíði á Kársnesi

Undirbúningur að smíði Fossvogsbrúar er nú kominn á næsta stig þar sem uppsetning á baujum í sjónum hefst á næstu dögum til að afmarka vinnusvæðið. Þetta markar upphaf sýnilegrar sjóvinnu eftir að verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS tóku formlega v

Framkvæmdir við brúarsmíði á Kársnesi
Mynd: Daniel Ellis / Pexels

Undirbúningur að smíði Fossvogsbrúar er nú kominn á næsta stig þar sem uppsetning á baujum í sjónum hefst á næstu dögum til að afmarka vinnusvæðið. Þetta markar upphaf sýnilegrar sjóvinnu eftir að verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS tóku formlega við framkvæmdasvæðinu á Kársnesi í janúar 2026. Framundan eru boranir á landfyllingu sem er fyrsti sýnilegi áfangi í sjóvinnunni.

Starfsemi verktaka vegna brúarsmíði fer fram á nýrri landfyllingu á norðanverðu Kársnesi og við Kópavogshöfn. Þriðja skilgreinda vinnusvæðið er á sjó þar sem brúin mun rísa á næstu tveimur árum. Vinnu við gerð landfyllinga og sjóvarna Reykjavíkurmegin er ekki lokið en áætlað er að því verki ljúki í sumar. Sjófarendum verður tryggð opin leið á framkvæmdatíma, afmörkuð með grænum baujum nánast fyrir miðju þar sem brúin mun rísa.

Boranir á landfyllingunni eru ætlaðar fyrir fyrsta burðarás brúarinnar. Alls verða burðarásarnir sex talsins og eru sex staurar notaðir í hverjum ás. Þetta er fyrsti hluti af því sem síðar verða brúarstólpar Fossvogsbrúar. Þegar borun er lokið fyrir fyrstu undirstöðuna verður prufustaurum slegið niður og undirbúningur hefst fyrir brúarás númer tvö. Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks, segir að framkvæmdirnar verði brátt sýnilegar í sjó og að búast megi við að þeirra verði vart í nágrenni við vinnusvæðið. Mælitæki verða notuð til að mæla hávaða við borun.

Kópavogsbær hefur veitt afnot af svæði við Kópavogshöfn þar sem verktakar hafa aðstöðu fyrir undirbúningsvinnu sem kallar á stór vinnutæki. Þar eru brúarstaurarnir festir saman og til að ferja þá yfir á veglegan pramma er notaður stærsti færanlegi krani á Íslandi. Pramminn mun svo sigla með staurana yfir á framkvæmdasvæðið á landfyllingunni norðanmegin á Kársnesi.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan

Heimild: Borgarlínan

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →