Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi
Framkvæmdir við heildarendurnýjun Bröttugötu í Borgarnesi hefjast á næstu vikum. Verkið felur í sér endurnýjun á lögnum og yfirborði götunnar og er áætlað að ljúka í lok október 2026.
Borgarbyggð hefur hafið undirbúning að umfangsmiklum framkvæmdum við Bröttugötu í Borgarnesi sem hefjast á næstu vikum. Framkvæmdirnar fela í sér heildarendurnýjun á bæði lögnum og yfirborði götunnar. Í samstarfi við Veitur og Rarik verða fráveitu-, kaldavatns- og hitaveitulagnir ásamt raflögnum endurnýjaðar. Borgarbyggð mun jafnframt sjá um endurnýjun á yfirborði götunnar og gangstéttum.
Verktaki framkvæmdarinnar er Borgarverk ehf. og er áætlað að henni ljúki í lok október árið 2026. Á meðan á framkvæmdum stendur verður akandi umferð um Bröttugötu lokuð og verða hjáleiðir merktar. Gönguleiðum verður þó haldið opnum og leitast verður við að tryggja aðgengi gangandi að húsum, skóla og nærliggjandi þjónustu. Umsjónaraðilar framkvæmdarinnar, þar á meðal Orri Jónsson frá EFLA, munu ganga í hús við framkvæmdarsvæðið til að ræða við íbúa um framkvæmdirnar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarbyggð
Heimild: Borgarbyggð