Framkvæmdir við Arnarnesveg miða vel – malbikun hefst í maí
Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, á milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram og er áætlað að hefja malbikun á Breiðholtsbraut í maí. Verklok eru áætluð í nóvember 2026.
Verkið er umfangsmikið og er unnið á nokkrum stöðum samtímis. Um 50 manns starfa við framkvæmdina, þar á meðal smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar. Vegagerðin hefur greint frá því að fjölda lykilverkefna sé lokið og nú sé unnið að frágangi brúa, undirganga og vegtenginga.
Helstu framkvæmdir og áætlanir
Á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut er unnið við uppsetningu vegriða og hljóðvegg, sem aðskilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni. Jafnframt er unnið að ýmsum frágangi sem er á lokametrunum. Í maí er síðan reiknað með að hefja malbikun yfirlaga á Breiðholtsbraut og vegtenginga að nýju brúnni. Búast má við einhverjum umferðartöfum vegna þeirrar vinnu.
Ný göngubrú er í smíðum yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf. Brúardekkið var steypt í byrjun apríl og nú er unnið við frágang, svo sem handriði á brúnni, auk þess sem verkpallar eru teknir niður. Ný undirgöng, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum sem nú eru komnar á sinn stað. Unnið er við frágang þeirra og uppsteypu stoðveggja.
Í vegstæði Arnarnesvegar, milli Breiðholtsbrautar og Rjúpnavegar, er frost farið úr fyllingum eftir kuldatíð. Þar er unnið við útkeyrslu styrktarlags, uppsetningu ljósastaura og frágang ofanvatnslagna. Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn, er unnið við uppsetningu ljósastaura og frágang burðarlags undir malbik.
Verkið heyrir undir Samgöngusáttmálann og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk, en eftirlit er í höndum VSB.
Sjá nánar: vegagerdin.is