Framkvæmdir hafnar við nýjan búsetukjarna á Dalsbakka 1
Jarðvinna er hafin við Dalsbakka 1 á Hvolsvelli vegna byggingar nýs búsetukjarna fyrir fólk með fötlun. Kjarninn mun hýsa sex sjálfstæðar íbúðir og aðstöðu fyrir starfsfólk.
Framkvæmdir eru hafnar við nýjan búsetukjarna á Dalsbakka 1 á Hvolsvelli, við hlið Kirkjuhvols. Verið er að leggja grunninn að einnar hæðar timbureiningarhúsi sem mun hýsa fólk með fötlun.
Húsið er hannað samkvæmt algildri hönnun til að tryggja gott aðgengi fyrir alla. Í því verða sex sjálfstæðar íbúðir og aðstaða fyrir að minnsta kosti sex starfsmenn sem munu veita íbúum þjónustu allan sólarhringinn. Útveggir hússins verða klæddir náttúrulitaðri, vatnsheldri Cembrit klæðningu ásamt Thermowood timburklæðningu.
Lóðin er ríflega 1.600 fermetrar að stærð og verða við húsið sex bílastæði. Þar af verða þrjú stæði sérstaklega ætluð hreyfihömluðum, á sömu hæð og gangstétt hússins. Einnig verður komið upp sorpaðstöðu fyrir sorpílát á lóðinni.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Rangárþing eystra
Heimild: Rangárþing eystra