Framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi í júlí og ágúst
Framkvæmdir við lagningu fráveitu- og neysluvatnslagna undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes hefjast 14. júlí og standa fram í miðjan ágúst. Verkið er hluti af uppbyggingu nýs hverfis í Arnarlandi og verður umferð haldið opinni með hjáleiðum.
Framkvæmdir við lagningu fráveitu- og neysluvatnslagna þvert undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes hefjast þann 14. júlí og standa fram til 18. ágúst. Verkið er liður í uppbyggingu nýs hverfis í Arnarlandi og verður unnið í áföngum.
Umferð um Hafnarfjarðarveg verður haldin opin allan framkvæmdatímann. Tímabundnar hjáleiðir verða byggðar upp og umferð leidd um þær þegar unnið er við einstakar akreinar, sem þá verða lokaðar á meðan. Allar hjáleiðir verða vel merktar og umferðarhraði lækkaður til að tryggja öryggi vegfarenda. Teikningar og loftmyndir sýna hjáleiðir í fyrsta, öðrum og þriðja áfanga verksins.
Vegfarendur eru beðnir um að fylgja merkingum og gæta varkárni á framkvæmdasvæðinu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær