Framkvæmdaleyfi vegna lagningar göngustígs, uppbyggingu dvalarsvæðis og útsýnispalls austan Bleiksár á Eskifirði.
Fjarðabyggð hefur gefið út nýtt framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu á útivistarsvæði austan Bleiksár á Eskifirði. Leyfið heimilar lagningu göngustígs, uppbyggingu dvalarsvæðis og gerð útsýnispalls.
Fjarðabyggð hefur gefið út nýtt framkvæmdaleyfi sem snýr að uppbyggingu á útivistarsvæði austan Bleiksár á Eskifirði. Leyfið, sem gefið var út 26. ágúst 2026, heimilar lagningu göngustígs, uppbyggingu dvalarsvæðis og gerð útsýnispalls.
Framkvæmdin felur í sér jarðvinnu vegna mótunar stígstæðis, lagningu burðarlags og yfirborðsefnis. Einnig verða gerðir lagnaskurðir fyrir raflagnir til að lýsa göngustíginn og tryggja þannig öryggi og aðgengi gesta.
Lögð er áhersla á að halda raski á gróðri og landi í lágmarki og að stígurinn falli sem best að landi og aðstæðum á svæðinu. Sérstakt tillit verður tekið til minja á svæðinu, þar sem framkvæmdir fara að hluta til fram innan helgunarsvæðis þeirra.
Óburðarhæfur jarðvegur verður fjarlægður undan stíglínu og uppgrafið efni nýtt við frágang, meðal annars í fláa. Burðarlag stígsins verður frostfrítt og vel þjöppunarhæft, laust við lífræn óhreinindi og stóra steina. Lokayfirborð malarstígsins verður um 2,0 metra breitt, jafnt og þétt, með þverhalla sem tryggir að yfirborðsvatn renni af stígnum.
Heimild: Skipulagsgáttin