Nýtt 1.636 fermetra gróðurhús rís í Vaglaskógi
Uppsetning á stóru gróðurhúsi í Vaglaskógi er í fullum gangi og stefnt er að því að það verði að mestu tilbúið að utan í vikunni. Land og skógur stendur að framkvæmdinni sem mun auka framleiðslu á fræi lerkiblendingsins Hryms og efla kynbótastarf.

Nýja gróðurhúsið verður 1.636 fermetrar, tæpir hundrað metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd. Um er að ræða stálgrindarhús klætt sextán millimetra einangrandi pólíkarbónat-plasti, með hefðbundinni hitastýringu og sjálfvirkum gluggum í mæni. Húsið er sérstaklega hannað til að þola mikil snjóþyngsli.
Eistneska fyrirtækið Topgreen sér um sölu og uppsetningu hússins. Verkstjórinn Andres Hinst vonast til að þeir félagar ljúki störfum við húsið tíunda september. Jarðverk ehf. gerði grunninn og ÁK-smíði steypti sökkulinn. Efla verkfræðistofa sá um mælingar, uppdrætti og gögn fyrir útboð.
Fyrir er um þúsund fermetra gróðurhús á Vöglum sem hefur verið nýtt til framleiðslu á trjáfræi, aðallega Hrymsfræi, undanfarna áratugi. Tilboð Topgreen var metið hagstæðast og gerði kleift að hafa nýja húsið stærra en áætlað var í upphafi.
→ Lesa upprunalegu fréttina á Víkublaðið
Heimild: Víkublaðið