Fossvogsbrú: Fyrstu staurar reknir í sjó
Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru komnar á fullt skrið en fyrstu staurar fyrir brúarstöplana voru reknir niður í sjávarbotninn í fyrrinótt. Stefnt er að því að brúin verði opnuð fyrir umferð í júní 2028.
Brúin er hluti af Borgarlínuverkefninu og er fyrsta stóra framkvæmdin í því. Fimm mánuðir eru síðan Betri samgöngur, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, skrifaði undir 7,7 milljarða króna verksamning við Ístak og danskt móðurfélag þess, Per Aarsleff. Ístaksmenn hófu að koma sér fyrir á vinnusvæðinu um síðustu áramót.
Næturvinna vegna aðflugs
Málmstykki sem nú sést skammt undan landi Kársnesmegin er fyrsta sýnilega merki nýrrar Fossvogsbrúnar. Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks, staðfesti að fyrstu staurarnir hefðu verið reknir niður í fyrsta landstöpulinn í vikunni og að byrjað væri að koma fyrir staurum sjávarmegin.
Um fjörutíu manns starfa á svæðinu á vegum verktakans. Aðalvinnutækið, stór prammi með risakrana, er í Kópavogshöfn yfir daginn en er dreginn yfir í Fossvog á kvöldin. Þar má hann aðeins vera frá ellefu á kvöldin til sjö á morgnana vegna aðflugs Reykjavíkurflugvallar. Guðjón Örn sagði að næturvinna væri nauðsynleg vegna hindranaflatar frá flugvellinum.
Brúin sjálf verður 270 metra löng og allt að sautján metra breið. Hún verður smíðuð í Póllandi og flutt í fimm stykkjum til Íslands. Hún er hönnuð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem og strætisvagna. Á þessu ári verða undirstöðurnar kláraðar og á næsta ári verður stálvirkið reist og brúin flutt á staðinn.
Sjá nánar: visir.is