Forstjóri Bláa Lónsins: Komum sterkari út úr þessari heimatilbúnu áskorun
Forstjóri Bláa Lónsins segir félagið standa vel og hafa komið sterkt út úr nýlegum áskorunum, en bendir á að velgengni sé háð almennri velgengni íslenskrar ferðaþjónustu.
Baðlónum hefur fjölgað töluvert á Íslandi á undanförnum áratug. Nýjustu baðlónin, Reykjaböðin við Hveragerði, opnuðu um helgina og eru þau nú orðin tólf talsins, þar af hafa fimm opnað á síðustu fimm árum.
Bláa Lónið er sögufrægasta baðlón landsins og Bláa Lónið hf. er langstærsta félagið í þessum geira. Félagið stefnir að því að skrá sig á hlutabréfamarkað í nóvember, sem markar tímamót í rekstri þess.
Rekstur Bláa Lónsins hf. snýst ekki lengur eingöngu um Bláa Lónið sjálft. Félagið hefur stækkað á alla kanta, á níu dótturfélög og stóran hlut í fjórum öðrum baðlónum við Mývatn, Húsavík, Egilsstaði og Laugarvatn. Félagið opnaði einnig hótel og fjallaböð í Kerlingarfjöllum fyrir þremur árum. Þessa dagana er félagið að reisa lúxushótel og fjallaböð í Þjórsárdal, sem kosta um 20 milljarða króna samkvæmt áætlunum. Þetta er eitt stærsta verkefni í ferðaþjónustu sem ráðist hefur verið í hér á landi. Þá má nefna snyrtivörulínu, lúxushótel og Michelin-stjörnu-veitingastað sem ekki eru taldir upp hér.
Þótt umsvif Bláa Lónsins hafi aukist eru megintekjur félagsins enn af lóninu við Svartsengi. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir að félagið standi mjög vel og hafi komið sterkar út úr þeim áskorunum sem það hefur þurft að takast á við, eins og covid-faraldurinn og eldsumbrotin á Reykjanesskaga. Hún er mjög ánægð með sumarið. Velgengni Bláa Lónsins sé þó háð því að íslenskri ferðaþjónustu gangi almennt vel, en Ísland hafi tapað markaðshlutdeild.
Heimild: RÚV