Formleg opnun Ráðhúss Húnabyggðar
Ráðhús Húnabyggðar var formlega opnað í gær, 29. maí 2026, að Húnabraut 5 að viðstöddum fjölda gesta. Opnunin hófst með söng Sigrúnar Erlu Snorradóttur við undirleik Elvars Loga Friðrikssonar. Pétur Arason sveitarstjóri hélt ræðu þar sem hann rakti t
Ráðhús Húnabyggðar var formlega opnað í gær, 29. maí 2026, að Húnabraut 5 að viðstöddum fjölda gesta. Opnunin hófst með söng Sigrúnar Erlu Snorradóttur við undirleik Elvars Loga Friðrikssonar. Pétur Arason sveitarstjóri hélt ræðu þar sem hann rakti tildrög þess að Húnabraut 5 varð fyrir valinu sem nýtt ráðhús og hvernig verkefnið var framkvæmt.
Við innréttingu húsnæðisins var tekið tillit til sögu hússins og sveitarfélagsins. Gamlar ljósmyndir af fólki og stöðum úr sveitarfélaginu prýða veggi, málverk í eigu sveitarfélagsins voru sett upp og stólar og borð frá Húnavöllum voru notuð. Kjarnafæði-Norðlenska gaf sveitarfélaginu teiknaðar myndir eftir Guðráð Jóhannsson af fólki og fyrirbærum í sláturhúsi SAH frá níunda áratugnum. Hluti þessara mynda er nú uppi á vegg í ráðhúsinu og prýðir fundarherbergi sveitarstjórnar Húnabyggðar, sem fékk nafnið Húnavellir. Skrifstofa sveitarstjóra fékk nafnið Húnaver.
Jóhannes Torfason færði sveitarfélaginu málverk að gjöf frá Ámundakinn, sem sýnir húsið að Húnabraut 5 og næsta nágrenni þess. Sveitarfélagið gaf Jóhannesi portrettmynd af Torfa föður Jóhannesar, sem Guðráður málaði á sínum tíma og var geymd í Húnavallaskóla. Opnuninni lauk með söng Sigrúnar Erlu. Að henni lokinni bauð sveitarfélagið íbúum í létta grillveislu og gaf þeim tækifæri til að skoða ráðhúsið og Skjólið, félagsmiðstöð ungmenna Húnabyggðar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Húnabyggð
Heimild: Húnabyggð