Formleg opnun á nýju skólalóðinni við Sóla

Ný skólalóð við leikskólann Sóla í Vestmannaeyjum hefur verið formlega tekin í notkun. Lóðin er hönnuð sem fjölbreytt og spennandi leiksvæði með áherslu á náttúrulegan og endurnýtanlegan efnivið.

Formleg opnun á nýju skólalóðinni við Sóla
Mynd: Braggi.is

Ný skólalóð við leikskólann Sóla í Vestmannaeyjum hefur verið formlega tekin í notkun. Lóðin er hönnuð sem fjölbreytt og spennandi leiksvæði með áherslu á náttúrulegan og endurnýtanlegan efnivið.

Linda Mjöll Stefánsdóttir átti veg og vanda að hönnun og vinnu við lóðina, en Daníel Hjörtur Sigmundsson hannaði og smíðaði kofa sem setur skemmtilegan svip á svæðið. Ragnar Þór Jóhannsson vann að framkvæmdum með tækjum sínum ásamt Lindu og Daníel.

Framkvæmdin var fjármögnuð af Vestmannaeyjabæ og leikskólinn nýtti jafnframt styrk úr þróunarsjóði fræðsluráðs. Efniviður á lóðinni kemur víða að, þar á meðal veglegur rekaviður að gjöf frá Önnu Svölu og Gauja, og ýmislegt úr eldri kastala leikskólans var endurnýtt, eins og rennibrautin.

Fjöldi starfsmanna og ungmenna frá Vestmannaeyjabæ kom að verkefninu. Lóðin var formlega tekin í notkun síðastliðinn fimmtudag við hátíðlega athöfn þar sem Helga Björk skólastýra, Íris Róbertsdóttir bæjarstýra og Eyrún Haraldsdóttir, fulltrúi úr stjórn foreldrafélagsins, fluttu ávörp.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær

Heimild: Vestmannaeyjabær

Deila Facebook X LinkedIn