Flytja aftur út sökum myglu
Fiskistofa hefur aftur sent starfsfólk sitt í heimavinnu vegna myglu sem greindist á nýjan leik í húsnæði stofnunarinnar á Borgum á Akureyri. Stofnunin hefur óskað eftir nýju húsnæði.
Fiskistofa hefur beðið starfsfólk sitt að vinna heima eftir að mygla greindist á nýjan leik í húsnæði þeirra á Borgum, við Norðurslóð á Akureyri. Stofnunin flutti tiltölulega nýlega aftur inn í húsnæðið eftir fyrri myglu. Eigendur húsnæðisins, Reitir, stóðu að miklum framkvæmdum og viðgerðum til þess að útrýma myglunni.
Átta sýni voru tekin í apríl og tvö þeirra greindust með myglugró yfir leyfilegum mörkum. Í kjölfarið bað Fiskistofustjóri, Elín Björg Ragnarsdóttir, starfsfólk sitt um að vinna heima á meðan verið væri að leita skýringa á greiningunni. Hún nefndi sem mögulega skýringu krossmengun á sýnum, en miklar framkvæmdir hafa verið í húsnæðinu undanfarin tvö ár sem gætu hafa valdið slíkri mengun.
Fiskistofa hefur óskað eftir því við Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir og viðkomandi ráðuneyti að finna annað húsnæði fyrir stofnunina, hvort sem það er til bráðabirgða eða til framtíðar. Mygla greindist fyrst í húsnæðinu á Borgum á Akureyri vorið 2024. Húsnæðið, sem er í eigu Reita, hýsti áður fjölmargar ríkisstofnanir og hafði myglan töluverð áhrif á starfsemi þeirra og olli miklu raski.
Heimild: RÚV