Fljótandi sánahús komin upp við Hof

Tvær fljótandi sánur hafa verið settar upp við Oddeyrarbót á Akureyri og stefnt er að opnun þeirra í næstu viku. Framkvæmdirnar, sem eru á vegum Book Sauna, hafa tafist um rúma tvo mánuði.

Fljótandi sánahús komin upp við Hof
Mynd: Braggi.is

Tvær fljótandi sánur hafa verið settar upp við Oddeyrarbót á Akureyri og stefnt er að opnun þeirra í næstu viku, gangi lokafrágangur samkvæmt áætlun.

Framkvæmdirnar, sem eru á vegum Book Sauna, hafa tafist um rúma tvo mánuði, meðal annars vegna vandræða við flutning húsanna og tafa á sérsmíðuðu gleri. Upphaflega stóð til að opna sánurnar í lok júní eða byrjun júlí.

Henrik Oftedal, framkvæmdastjóri Book Sauna, staðfestir að vandamál hafi komið upp við flutning til landsins, auk þess sem óhapp varð með eina af stórum glerrúðum húsanna. Um er að ræða sérstakt þriggja laga lagskipt gler sem þurfti að framleiða í réttri stærð og tók um fjórar vikur að fá nýja rúðu.

Nú er frágangur á lokametrunum og iðnaðarmenn eru að tengja rafmagn í húsin, auk þess sem vinna er eftir við að festa flotbryggjuna betur.

Sánurnar tvær standa á fljótandi palli við bryggjuna í Oddeyrarbót, skammt frá Hofi. Hvort hús rúmar allt að tíu manns í einu, sem gerir ráð fyrir allt að 20 gestum samtímis. Gestir geta gengið beint úr sánunni út á flotpall og farið þaðan niður stiga í sjóinn.

Einnig stendur til að koma upp ferskvatnssturtu við hvort hús og skilrúmi á milli þeirra til að auka næði. Fyrirtækið hefur tryggt sér aðstöðu á þessum stað til tveggja ára. Forsvarsmenn Book Sauna hafa þegar augastað á frekari uppbyggingu hér á landi.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net

Heimild: Akureyri.net

Deila Facebook X LinkedIn