Fljótandi sána opnar við Hof í júlíbyrjun
Fljótandi sána með tveimur sánahúsum mun opna við bryggjuna hjá Hofi á Akureyri í lok júní eða byrjun júlí, ef áætlanir ganga eftir. Fyrirtækið MeiSauna ApS stendur að framkvæmdinni, en Meinhard Egilsson Olsen er eigandi þess. Sánuhúsin eru í smíðum
Fljótandi sána með tveimur sánahúsum mun opna við bryggjuna hjá Hofi á Akureyri í lok júní eða byrjun júlí, ef áætlanir ganga eftir. Fyrirtækið MeiSauna ApS stendur að framkvæmdinni, en Meinhard Egilsson Olsen er eigandi þess.
Sánuhúsin eru í smíðum í Noregi og verða flutt til landsins þegar þau eru tilbúin. Hvert hús tekur allt að tíu manns í einu, og verður bæði búningsaðstaða og sturtur í þeim. Gestir geta gengið beint út á pallinn frá bryggjunni við Oddeyrarbót og farið í sjóinn til sjóbaðs. MeiSauna rekur sambærileg sánuhús í Noregi og Færeyjum.
Starfsemin verður opin allt árið, frá klukkan sex á morgnana til tíu á kvöldin. Boðið verður upp á almennar heimsóknir og einkabókanir fyrir hópa. Venjuleg heimsókn varir í 75 mínútur og kostar stakur aðgangur 2300 krónur. Fyrirtækið mun einnig bjóða heimamönnum sérstök áskriftarkjör, með pláss fyrir 150 áskrifendur fyrsta árið. Helsta óvissan snýr að leyfum og úttekt frá heilbrigðisyfirvöldum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net