Flateyri: vatn
Vatnsinntaki að vatnstanki á Flateyri hefur verið lokað vegna mikillar rigningar og skriðuhættu. Íbúar eru beðnir um að fara sparlega með vatn.
Vegna mikillar rigningar og skriðuhættu hefur verið lokað fyrir vatnsinntak að vatnstanki á Flateyri.
Tankurinn er fullur af hreinu vatni en íbúar eru beðnir um að fara sparlega með vatn þar til nánari upplýsingar berast.
Ísafjarðarbær sendi SMS-skilaboð um vatnslokunina til íbúa á Flateyri í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin berast eingöngu þeim sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819. Þeir sem óska eftir að fá upplýsingaskeyti þurfa að ganga úr skugga um að skráning sé til staðar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Ísafjarðarbær
Heimild: Ísafjarðarbær