Fjölgun ungs fólks í leiguhúsnæði merki um stækkandi markað
Fjölgun ungs fólks á leigumarkaði gæti bent til stækkandi leigumarkaðar, samkvæmt nýrri búsetumælingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Hlutfall 18-24 ára á leigumarkaði hækkaði úr 34% í 45% milli ára.
Fjölgun ungs fólks á leigumarkaði gæti bent til þess að leigumarkaðurinn sé að stækka, samkvæmt nýrri búsetumælingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Hlutfall fólks á aldrinum 18 til 24 ára á leigumarkaði hækkaði úr 34% í 45% milli ára, á sama tíma og hlutfall þessa aldurshóps í heild lækkaði um 10%. Alls er um 29% fullorðins fólks á leigumarkaði, samanborið við 28% árið áður.
Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, segir að færslan ungs fólks úr foreldrahúsum á leigumarkaðinn hafi verið í hærra lagi síðastliðið ár. Hann bendir á að rannsóknaraðferðum hafi verið breytt árið 2022 til að ná til fleira fólks, og sömu aðferð var beitt í ár. „Þetta er í annað skipti sem við notum þessa sömu mæliaðferð og hún sýnir einhverja breytingu þannig að þetta er einhver vísbending um það að leigumarkaðurinn hafi stækkað og við sjáum þessa breytingu,“ segir Jónas Atli.
Hann setur breytinguna í samhengi við kólnandi fasteigna- og byggingamarkað. „Aðstæður til húsnæðiskaupa eru erfiðar og það getur útskýrt það af hverju leigumarkaðurinn er að stækka samkvæmt okkar mælingum, en af hverju fólk er að flytja úr foreldrahúsum og á leigumarkaðinn er önnur spurning.“ Vísitala íbúðaverðs hækkaði aðeins um 0,09% milli mánaða í júní og nemur árshækkunin 1,80%, sem er næstminnsta árshækkun frá árinu 2011. Á höfuðborgarsvæðinu er árshækkun íbúðaverðs undir einu prósenti og lækkaði verð í fjölbýli um 1,17% milli mánaða.
Jónas Atli segir hlutfall yngsta aldurshópsins á leigumarkaði vera í hærra lagi miðað við fyrri mælingar og að því sé rík ástæða til að athuga í næstu könnunum hvort um varanlega breytingu sé að ræða.
Heimild: RÚV