Fjarðabyggð ætlar að kaupa smáhýsi fyrir fólk með flókinn vanda

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt tillögu um kaup á tveimur smáhýsum fyrir heimilislausa einstaklinga með flókinn vanda. Sveitarfélagið hefur ekki áður haft slík sértæk úrræði.

Fjarðabyggð ætlar að kaupa smáhýsi fyrir fólk með flókinn vanda
Mynd: Braggi.is

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt tillögu fjölskylduráðs um kaup á tveimur smáhýsum. Húsnæðið er ætlað heimilislausum einstaklingum sem glíma við flókinn vanda.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um staðsetningu húsanna. Tillagan var lögð fram af stjórnanda félagsþjónustu í júní og samþykkt af fjölskylduráði sama mánuð.

Í minnisblaði stjórnanda félagsþjónustu kemur fram að sveitarfélagið standi reglulega frammi fyrir áskorunum vegna einstaklinga með flókinn fíkni- og geðvanda. Erfið staða skapast þegar þeir missa húsnæði eða útskrifast úr meðferð eða af sjúkrastofnun án öruggs búsetuúrræðis. Til þessa hafa ekki verið til staðar sértæk búsetuúrræði eða önnur viðeigandi skammtímaúrræði í Fjarðabyggð.

Kostnaður við rekstur og þjónustu hvers smáhýsis er áætlaður á bilinu 5 til 8,5 milljónir króna á ári. Sveitarfélagið gerir ráð fyrir að fá 1 til 1,8 milljónir króna í húsaleigu árlega af hvoru húsi, en íbúar geta átt rétt á húsnæðisbótum eða sértækum húsnæðisstuðningi.

Kostnaður við smáhýsin skiptist á milli framkvæmdasviðs, sem sér um fasteignirnar, og félagsmálasviðs sem hugsar um íbúana. Bæjarráð samþykkti að leggja út fyrir kaupum á húsnæðinu og fól sviðunum að vinna að frekari undirbúningi.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt

Heimild: Austurfrétt

Deila Facebook X LinkedIn