Fisk­tækni­skól­inn flyt­ur aftur til Grinda­vík­ur

Fisktækniskóli Íslands mun hefja starfsemi að nýju í Grindavík frá og með haustönn 2026 og flytur þá í Hópsskóla í Grindavík. Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar eftir tveggja ára dvöl skólans í Suðurnesjabæ. Flutni

Fisk­tækni­skól­inn flyt­ur aftur til Grinda­vík­ur
Mynd: flickr (CC BY-SA)

Fisktækniskóli Íslands mun hefja starfsemi að nýju í Grindavík frá og með haustönn 2026 og flytur þá í Hópsskóla í Grindavík. Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar eftir tveggja ára dvöl skólans í Suðurnesjabæ. Flutningurinn er sagður styrkja mennta- og atvinnulíf á svæðinu.

Skólinn útskrifaði nýverið 45 nemendur og mun áfram bjóða upp á fjölbreytt og hagnýtt nám á framhaldsskólastigi sem tengist sjávarútvegi. Námið byggir á tveggja ára grunnnámi sem skiptist á milli skólanáms og starfsnáms á vinnustöðum, meðal annars í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi. Einnig verður áfram boðið upp á framhaldsnám í fiskeldi ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum. Á vef Grindavíkurbæjar er flutningurinn sagður jákvætt skref fyrir samfélagið og merki um aukna starfsemi og uppbyggingu í bænum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →