Framkvæmdir tvöfalda eldisgetu First Water í Þorlákshöfn

First Water og Ístak hafa undirritað samning um framkvæmdir á athafnasvæði First Water í Þorlákshöfn. Verkefnið felur í sér uppbyggingu kerja- og stjórnbyggingar sem mun hýsa átta eldisker, hvert um 5.500 rúmmetrar að stærð, ásamt tilheyrandi tæknibúnaði.

Framkvæmdir tvöfalda eldisgetu First Water í Þorlákshöfn
Mynd: Greece-China News / Pexels

First Water og Ístak hafa undirritað samning um framkvæmdir á athafnasvæði First Water í Þorlákshöfn. Verkefnið felur í sér uppbyggingu kerja- og stjórnbyggingar sem mun hýsa átta eldisker, hvert um 5.500 rúmmetrar að stærð, ásamt tilheyrandi tæknibúnaði.

Með framkvæmdunum verður fyrsta áfanga landeldisverkefnis félagsins lokið og árleg framleiðslugeta tvöfölduð, úr 5.000 í 10.000 tonn af slægðum laxi. Ístak mun annast uppsteypu, reisa stálvirki og sjá um klæðningu mannvirkisins.

Framkvæmdir hefjast á næstunni og er gert ráð fyrir að þær taki 16–18 mánuði. Áætlað er að þeim ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2028. Að sögn Einars Arnar Ólafssonar, forstjóra First Water, er samningurinn stór og mikilvægur áfangi í uppbyggingu félagsins.

Þetta er fyrsti áfangi af sex í landeldisstöð First Water í Þorlákshöfn. Langtímamarkmið félagsins er að framleiða allt að 60.000 tonn af slægðum laxi á ári þegar uppbyggingu verður að fullu lokið.

Deila Facebook X LinkedIn