Finnar ljúka 200 km girðingu við rússnesku landamærin
Finnar hafa lokið byggingu á 200 kílómetra girðingu við rússnesku landamærin. Tilgangurinn er að koma í veg fyrir tilraunir til að reyna á innviði landsins með því að senda flóttamenn yfir landamærin, eins og gerðist fyrir tæpum þremur árum.
Finnar hafa formlega lokið byggingu á 200 kílómetra girðingu meðfram landamærunum að Rússlandi. Tilgangurinn með girðingunni er að koma í veg fyrir að Rússar geti sent flóttamenn yfir landamærin til að reyna á innviði landsins, eins og gerðist fyrir tæpum þremur árum.
Landamærunum var fyrst lokað í desember 2023. Þá höfðu Rússar sent yfir 1.300 innflytjendur án vegabréfsáritunar að landamærunum, margir þeirra á reiðhjólum. Síðan þá hefur ástandið verið rólegra og flóttamenn um landamærin hafa aðeins verið örfáir. Upp úr því hófst bygging girðingarinnar, sem stjórnvöld hafa talið nauðsynlega til að tryggja eigið öryggi. Hún er alls 4,5 metra há og með gaddavír.
Finnsk stjórnvöld héldu blaðamannafund í morgun við Nuijamaa-landamærastöðina, sem var einn stærsti vettvangur þessara sendinga Rússa á flóttamönnum. Mari Rantanen innanríkisráðherra sagði að þó að ástandið væri rólegt núna gæti það breyst hratt. „Við þurfum einhvern tímann að meta hvort frekari girðinga sé þörf. Við þurfum fjármagn frá Evrópusambandinu til landa í austanverðri Evrópu fyrir svona verkefni,“ sagði hún. Landamæri Finnlands og Rússlands eru alls 1.340 kílómetra löng.
Rantanen segir að girðingin hjálpi til við landamæraeftirlit og að tryggja öryggi landamæranna. Svipaðar girðingar hafa verið reistar við landamærin í Eistlandi, Lettlandi og Litáen, sem og á landamærum Póllands og Belarús.
Heimild: RÚV