Felldi úr gildi byggingarleyfi Samhjálpar á Grensásvegi
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi byggingarleyfi sem Reykjavíkurborg veitti Samhjálp fyrir kaffistofu við Grensásveg 46. Ástæðan er einkum sú að ekki var gert viðeigandi deiliskipulag fyrir lóðina áður en leyfið var veitt.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi byggingarleyfi sem Reykjavíkurborg veitti Samhjálp fyrir kaffistofu við Grensásveg 46. Samhjálp hafði fengið leyfi til að endurinnrétta húsið fyrir nýja kaffistofu í mars síðastliðnum, en starfsemin hefur verið á hrakhólum síðan í september þegar hún flutti úr húsnæði sínu í Borgartúni. Samhjálp tók húsnæðið við Grensásveg 46 á leigu í fyrra, en þar eru einnig starfræktar kjötverslun, tannlæknastofa og íbúðir.
Margir íbúar hverfisins gerðu athugasemdir við nýja staðsetningu kaffistofunnar og kærðu samþykkt byggingarleyfisins til úrskurðarnefndarinnar. Í kærunni var einkum vísað til áhyggja af mögulegum áhrifum starfseminnar á nærumhverfi, börn í hverfinu og fasteignaverð. Úrskurðarnefndin taldi að nauðsynlegt hefði verið að breyta deiliskipulagi fyrir lóðina á Grensásvegi áður en byggingarleyfi var samþykkt. Þetta mat nefndarinnar var talið verulegur annmarki á undirbúningi leyfisveitingarinnar og því var fallist á kröfu kærenda um ógildingu leyfisins.
Þá gerði nefndin athugasemdir við það að Reykjavíkurborg hefði ekki kynnt ráðgerða notkun húsnæðisins betur í grenndarkynningu áður en leyfi var veitt. Ekkert mat lá fyrir þegar kynningin fór fram um líkleg áhrif kaffistofunnar á nærumhverfið.
Heimild: RÚV