Félagshesthús rísi hjá Spretti
Garðabær, Kópavogur og hestamannafélagið Sprettur hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu. Félagshesthúsið mun rúma 40 hesta og verður 450 fermetrar að stærð. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Ásdís Kristjá
Garðabær, Kópavogur og hestamannafélagið Sprettur hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu. Félagshesthúsið mun rúma 40 hesta og verður 450 fermetrar að stærð.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, og Halldór Victorsson, formaður Spretts, skrifuðu undir yfirlýsinguna. Aðstaða verður fyrir fatlaða einstaklinga til að sækja reiðkennslu, auk þess sem grunnskólanemendum í sveitarfélögunum verður gert kleift að sækja reiðkennslu sem hluta af vali í grunnskóla á skólatíma.
Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður 170 milljónir króna. Garðabær og Kópavogur lýsa yfir vilja til að leggja hestamannafélaginu til styrk að fjárhæð 55 milljónir króna hvort, samtals 110 milljónir króna. Gerður verður sérstakur samningur um framkvæmdina og starfshópur verður settur á laggirnar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær