Fasteignagjöld hækka um 60% frá 2021 – Meðalfasteignamat upp um 81%
Meðalfasteignamat 161 fermetra einbýlishúss hefur hækkað um 81% að nafnvirði frá árinu 2021, úr 41 milljón króna í 75 milljónir. Á sama tíma hafa fasteignagjöld af sambærilegri eign hækkað um 60%, en verðlag hefur hækkað um 36% á sama tímabili.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt Byggðastofnunar sem nær til rúmlega 100 svæða um allt land. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda milli áranna 2025 og 2026 var á höfuðborgarsvæðinu, eða 8,1%. Í fyrra urðu fasteignagjöld viðmiðunareignar í fyrsta sinn að meðaltali hærri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Sjá nánar: mbl.is