Farþegar varðir fyrir veðri og vindum við flugstoöðina og ný innkeyrsla

Ný innkeyrsla hefur verið opnuð inn á komusvæði Keflavíkurflugvallar og gönguleiðir yfirbyggðar til að verja farþega fyrir veðri og vindum. Framkvæmdir á svæðinu eru að ljúka og bæta aðstöðu fyrir farþega og þjónustuaðila.

Farþegar varðir fyrir veðri og vindum við flugstoöðina og ný innkeyrsla
Mynd: Braggi.is

Ný og bætt innkeyrsla hefur verið opnuð inn á komusvæði Keflavíkurflugvallar, þar sem meðal annars eru staðsettir komubílastæði (P2). Jafnframt hefur verið byggt yfir helstu gönguleiðir á svæðinu til að verja farþega fyrir veðri og vindum.

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á bílastæðunum þar sem komufarþegar koma út úr flugstöðinni undanfarna mánuði. Verkefninu mun senn ljúka og er aðstaðan þar mikið bætt fyrir farþega og þá sem sækja eða veita þjónustu við flugstöðina. Búið er að koma fyrir rennu vestast á P2 þar sem hægt er að sækja farþega með sama hætti og þeim er skutlað í flug um rennuna hinum megin.

Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →