Farþegamiðstöðin Vör opnuð við Viðeyjarsund

Fjölnota farþegamiðstöðin Vör við Viðeyjarsund var formlega opnuð föstudaginn 29. maí 2026. Gunnar Tryggvason hafnarstjóri og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri klipptu á borðann og vígðu miðstöðina. Vör er sérhæfð farþegamiðstöð fyrir skemmtifer

Farþegamiðstöðin Vör opnuð við Viðeyjarsund
Mynd: flickr (CC BY-SA)

Fjölnota farþegamiðstöðin Vör við Viðeyjarsund var formlega opnuð föstudaginn 29. maí 2026. Gunnar Tryggvason hafnarstjóri og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri klipptu á borðann og vígðu miðstöðina.

Vör er sérhæfð farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip og er fyrsta nýja farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár, eða frá opnun BSÍ árið 1965. Hún leysir af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu á hafnarsvæðinu og styður markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega. Miðstöðin rúmar allt að tvö þúsund gesti og mun utan annatíma, frá október og út mars ár hvert, verða vettvangur fjölbreyttra viðburða og veisluhalds.

Nafnið Vör var valið í nafnasamkeppni þar sem yfir sex þúsund tillögur bárust frá meira en 3.300 þátttakendum. Nafnið vísar til lendingar og skjóls við sjó og táknar móttöku og komu ferðalanga.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg

Heimild: Reykjavíkurborg

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →