Fara fram á nauðungarsölu hjá félagi í helmingseigu þingmanns
Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóðinni Bjarkarholt 32-34 í Mosfellsbæ, sem er í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagsins.
Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóðinni Bjarkarholt 32-34 í Mosfellsbæ, sem er í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagsins.
Nauðungarsalan var auglýst í Lögbirtingablaðinu 2. júlí, en Efniviður ehf. og Arion banki fóru fram á hana vegna krafna upp á 981 milljón króna. Bergþór Ólason segir í samtali við Heimildina, sem greinir frá málinu, að verið sé að vinna í því og hann á ekki von á að af nauðungarsölunni verði. Hann hefur hvorki verið á launum hjá félaginu né fengið arð greiddan.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar stóð til að reisa hjúkrunarheimili á lóðinni í samvinnu við Eir og Mosfellsbæ, en frá þeim áformum var fallið fyrr á þessu ári. Render Centium er skráð í atvinnuflokknum bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
Bergþór Ólason er skráður sem raunverulegur eigandi helmings hlutafjár í Render Centium í fyrirtækjaskrá Skattsins, ásamt föður sínum, Óla Jóni Gunnarssyni. Eignarhaldið er óbeint og fer í gegnum móðurfélagið Byggingarlausnir, að sögn Bergþórs.
Heimild: RÚV