Fallið frá áformum um fjölbýlishús við Hvannavelli 10

Fyrirtækið Vesturkantur ehf. hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi Hvannavalla 10-12 og 14, sem felur í sér að fallið verður frá áformum um byggingu fjölbýlishúss á lóð Hvannavalla 10. Í stað niðurrifs á húsinu, sem byggt var árið 1960 og hýst

Fallið frá áformum um fjölbýlishús við Hvannavelli 10
Mynd: Braggi.is

Fyrirtækið Vesturkantur ehf. hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi Hvannavalla 10-12 og 14, sem felur í sér að fallið verður frá áformum um byggingu fjölbýlishúss á lóð Hvannavalla 10. Í stað niðurrifs á húsinu, sem byggt var árið 1960 og hýsti áður starfsemi Hjálpræðishersins, er nú gert ráð fyrir að það haldi sér í óbreyttri mynd. Jafnframt er fyrirhugað að útfæra bílastæði til útleigu á baklóð hússins.

Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi í liðinni viku en það verður tekið fyrir á ný síðar. Skipulagsfulltrúa var falið að ræða við umsækjanda. Samkvæmt Sunnu Hlín Jóhannesdóttur, formanni skipulagsráðs, er vilji ráðsins að sjá aukna íbúðauppbyggingu á Oddeyri á komandi árum, en ekkert hefur verið ákveðið enn með afgreiðslu málsins.

Lóðin er í núverandi skipulagi ætluð fyrir íbúðarhúsnæði á fjórum hæðum og leyfi til niðurrifs á núverandi húsi. Breytingin miðar að því að breyta lóðinni aftur í verslunar- og þjónustulóð, í samræmi við gildandi aðalskipulag, og að núverandi hús standi áfram með endurbótum og breytingum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn