Fagnar áformum ráðherra á leigumarkaði

Formaður Leigjendasamtakanna fagnar fyrirhuguðu frumvarpi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð.Nái frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga verður ekki lengur heimilt að tengja leigusamninga við mánaðarlega vísitölu.Yngvi Ómar Sigr

Fagnar áformum ráðherra á leigumarkaði
Mynd: Adam Clark / Pexels

Formaður Leigjendasamtakanna fagnar fyrirhuguðu frumvarpi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð.Nái frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga verður ekki lengur heimilt að tengja leigusamninga við mánaðarlega vísitölu.Yngvi Ómar Sigrúnarson segir málið forgangsmál hjá Leigjendasamtökunum.„Því þetta tíðkast hvergi í heiminum, svo við vitum til, að það sé hægt að hækka leigu mánaðarlega með vísitölu – sem þýðir að þetta hækkar líka verðbólgu.“Hann segir þetta fyrsta skrefið til að bæta réttarstöðu leigjenda á Íslandi og gera leigumarkaðinn réttlátari.Yngvi Ómar bendir á að um 30% landsmanna séu leigjendur og því mikið undir. Breytingin gagnist þó einnig landsmönnum sem eru ekki á leigumarkaði.Slær á verðbólguna„Samkvæmt okkar útreikningum er þetta stór hluti af ársverðbólgu hvers árs, þessi verðtrygging á leigu.“Yngvi vísar til síðustu verðbólgumælinga. Í þeim var aukning á verðbólgunni meðal annars rakin til reiknaðrar húsaleigu. „Þetta eru að miklu leyti þessar sjálfvirku vísitöluhækkanir,“ segir hann.Í flestum löndum Evrópu má hækka leigu einu sinni á ári í tengslum við vísitölu, segir Yngvi. „En þú mátt ekki líka hækka hana í tengslum við markaðsverð eða eitthvað sem þér finnst þú eiga að fá fyrir íbúðina þína,“ segir hann.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn