Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Húsfyllir var á íbúafundi í Vestmannaeyjum í gær þar sem Vegagerðin kynnti stöðu Landeyjahafnar og hugmyndir um næstu skref. Meðal frummælenda voru Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Fannar Gíslason
Húsfyllir var á íbúafundi í Vestmannaeyjum í gær þar sem Vegagerðin kynnti stöðu Landeyjahafnar og hugmyndir um næstu skref. Meðal frummælenda voru Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Fannar Gíslason forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar og Kjartan Elíasson sérfræðingur á hafnadeildinni.
Á fundinum var farið yfir áskoranir síðasta vetrar og hvernig dýpkun hafnarinnar hefur gengið undanfarin ár. Kynntar voru frumniðurstöður rannsókna Dönsku straumfræðistofunnar DHI A/S og rætt um mögulegar lausnir til að bæta nýtingu hafnarinnar. Eyjólfur Ármannsson sagði stjórnvöld staðráðin í að leysa áskoranir í samgöngum milli lands og Eyja og minnti á að um 440 þúsund farþegar færu árlega um höfnina. Hann lagði áherslu á heildstæða framtíðarsýn um ferjusamgöngur, þar á meðal endurnýjun ferjuflotans og orkuskipti.
Frá og með haustinu mun nýr dýpkunarverktaki frá Belgíu, Jan de Nul, taka við verkefnum í Landeyjahöfn. Eyjólfur sagði að fyrirtækið reki fjölda öflugra skipa og geti kallað til skip ef á þarf að halda. Einnig voru nefndar hugmyndir um að eiga tiltækar vélar í Herjólf til að hægt sé að skipta þeim út með hraði ef vélabilanir koma upp.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Eyjafréttir
Heimild: Eyjafréttir