Enn töluvert um athugasemdir vegna nýs aðalskipulags Múlaþings
Nýtt aðalskipulag Múlaþings hefur enn á ný hlotið fjölmargar athugasemdir, þrátt fyrir breytingar sem gerðar voru eftir fyrri kynningu. Um 40 athugasemdir bárust í seinni kynningu sem lauk nýverið.
Múlaþing hefur auglýst nýtt aðalskipulag sitt til ársins 2045 að nýju. Þrátt fyrir umfangsmiklar breytingar sem gerðar voru eftir fyrri kynningu, berast enn fjölmargar athugasemdir.
Umsagnarfrestur vegna annarrar kynningar rann út um miðjan síðasta mánuð. Fyrir fyrri kynningu, sem lauk í febrúar, bárust rúmlega 50 athugasemdir. Í kjölfarið var ákveðið að auglýsa skipulagið aftur í lok apríl vegna mikilla breytinga.
Nú fara stjórnendur Múlaþings yfir tæplega 40 athugasemdir sem bárust í seinni umferðinni. Áður en skipulagið verður sent Skipulagsstofnun til skoðunar og staðfestingar.
Gagnrýnin er margháttuð. Hún snýr meðal annars að flokkun landbúnaðarlands og skorti á skýrri umfjöllun um hvenær deiliskipulags er krafist fyrir framkvæmdir í dreifbýli. Einnig er bent á að mörg hugtök og orðalag í skipulaginu séu of matskennd, sem gæti valdið óvissu um túlkun ákvæða.
Ábúendur á Egilsstaðabúinu leggja áherslu á vandaða ákvörðun um umsvifasvæði flugvallarins til lengri tíma. Heilbrigðisstofnun Austurlands gerir athugasemdir við að framtíðarsvæði fyrir stækkunarmöguleika stofnunarinnar séu of lítil og þurfi stækkunar við. HEF-veitur benda á að ekki sé minnst á vatnsvernd eða kröfur vegna þeirra á svæðum innan grannsvæðis vatnsbóls Seyðisfjarðar. Vegagerðin lýsir óánægju með ýmsa þætti skipulagsins, meðal annars vegi í náttúrunni sem ekki hafa hlotið samþykki.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt